7.8.2009 | 17:27
Flotið sofandi að diplómatískum feigðarósi
Í hléinu kom til tals á léttu nótunum hvað sumir, sem þetta rita, geta oft verið skoðanalausir og bara látið sig berast með fjöldanum. Vissulega réttmæt gagnrýni enda ekki oft sem mín blandar sér í rökræður um eitt né neitt, hvort sem það eru umræður um aðild að ESB eða hvaða skyndibitastaður verði fyrir valinu það kvöldið.
Þetta fékk mína til að hugsa að sem betur fer lenti hún ekki í röngum félagsskap á sínum yngri árum, eins áhrifagjörn og hún var, og er enn. Betra að vinahópurinn geri góðlátlegt grín að manni fyrir skoðanaleysið en að tilheyra e-m fordómafullum ofstækishópi sem fer ekki í neinar grafgötur með sínar skoðanir.
Magnað samt hvað útlenskur hreimur getur verið bráðsmitandi, stóð mig nefnilega að því að svara manni á bílaþvottastöð: Ach, nein... er ryksugan biluð!" Eða er það kannski bara ég sem er svona móttækileg fyrir bíómyndum?
Um bloggið
Blogg í blíðu og stríðu (en mest þó í blíðu)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Ach nein?
Ach, du bist so süss
Guðrún Jón (IP-tala skráð) 17.8.2009 kl. 21:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.