20.7.2008 | 13:00
R.I.P. - Ritgerð in progress
Jæja, held það sé orðið tímabært að setja out of office á þessa síðu, sem í raun og veru þýðir out of ideas
Er farin í bloggfrí fram í byrjun september, sem reyndar verður nýtt til skrifta á öðrum vettvangi, þ.e. í vinnu og námi. Vegna fjölda áskorana mun ég nú snúa mér alfarið að ritgerðarvinnu næstu vikurnar svo allt annað mun dingla á hakanum hjá minni. Meðal þess sem sett verður á ís frá og með deginum í dag er; þessi síða, fésbókin, msn-ið, tölvupóstlestur og -sendingar, hvers kyns hittingar í heimahúsum, á kaffihúsum, öldurhúsum eða í bíósölum, reglulegur svefn, reglulegir matmálstímar og fleira þess háttar.
Úff...eftir að hafa lesið þetta yfir held ég að ég gæti allt eins verið dauð! En ég get víst ekki ásakað neina aðra en sjálfa mig fyrir að neyðast til að fremja þetta félagslega sjálfsmorð (aftur!). Ég hvet ykkur samt til að fylgjast með væntanlegri endurfæðingu minni í september þ.e.a.s. ef ég og síðan mín verðum ekki bara gleymdar og grafnar þá
Um bloggið
Blogg í blíðu og stríðu (en mest þó í blíðu)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Gangi þér vel, Nína mín. Vona að þú gangir ekki fram af sjálfri þér. Vona líka að þú sért í raun að skrifa þegar þú hafnar okkur núna, ólíkt síðustu viku Ég lofa að vera ekki að dangla neinum tilboðum um tímaþjófa framan í þig, en ég er alltaf til ef þú vilt fá að standa aðeins upp frá skrifunum. Ekki langt fyrir þig að fara og svona
Guðrún Jóna (IP-tala skráð) 20.7.2008 kl. 14:08
Ooo ok, tha ætti eg kannski ekkert ad segja ther ad eg var ad senda ther tølvupost?! Gangi ther bara svakalega vel esskan! Kær kvedja Eyvinda
Eyvinda (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 08:09
Gangi þér vel, ég læt þig samt vita þegar við förum á Mamma Mia. Held að þú munir hafa gott af því að kíkja aðeins úr ritgerðarhelvítinu og lyfta þér aðeins upp
Sólveig (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 14:41
Ok... ætla að gera enn eina tilraun til að kommenta...
við bíðum þin í september með kampavín í annarri hendi og osta í hinni og fögnum SÁR- Skil- Á- Ritgerð.
hanna (IP-tala skráð) 21.7.2008 kl. 16:44
Takk fyrir stuðninginn stelpur mínar, alveg frábært að eiga svona persónulegt klappstýrulið
Reyni að vera ógó dugleg svo ég get hitt ykkur og haldið sambandi!
Dulúð Jóns, 21.7.2008 kl. 19:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.