6.7.2008 | 13:46
Nú er það svart og fokið í flestöll skjól, Fésbók hér kem ég!
Því miður, engin færsla þessa vikuna.
Blogghatarinnmikli er upptekinn við að nútímavæðast og halda í við tímasóandi tískubólur áður en þær springa. Helst á döfinni þessa vikuna verður daglegt klikk á tóma kassa í Núinu og prufukeyrsla á nýju Fésbókinni. Hver fágæt frístund verður nýtt fyrir framan tölvuna og tekin verður áhætta á aukningu á vinnutengdum sjúkdómum eins og lyklaborðsgigt, tölvuskjástöru og rassvöðvabólgu, sem þegar hrjá blogghatarann. En hvað gerir maður ekki fyrir tæknióða vini sína?
Um bloggið
Blogg í blíðu og stríðu (en mest þó í blíðu)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hvernig gengur svo með ritgerðina?
Ingólfur (IP-tala skráð) 6.7.2008 kl. 16:42
Leiðindaspurning er þetta, Nínu gengur svo vel að nútímavæðast og ef vel gengur láta nútímavæðinguna leiða hugann frá ritgerðardruslunni
Sólveig (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 17:13
Já, þetta er leiðindaspurning! Verst að mér gengur ekki jafn vel að ritgerðast og að nútímavæðast
Dulúð Jóns, 8.7.2008 kl. 21:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.